Home Fréttir Í fréttum Innviðafélag ríkisins verður Göng og brú

Innviðafélag ríkisins verður Göng og brú

85
0
Innviðafélag ríkisins verður Göng og brú
Félagið er stofnað á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og mun það fara með eignarhald og rekstur gangnanna frá og með deginum í dag. Ljósmynd: Aðsend mynd

Innviðafélag ríkisins verður Göng og brú

Fjármögnun félagsins og verkefna þess mun byggjast að mestu á notendagjöldum og lánsfjármögnun á almennum markaði.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur komið á fót hlutafélagi um fjármögnun og uppbyggingu mikilvægra samgöngumannvirkja á grundvelli laga um innviðafélag sem Alþingi samþykkti þann 18. júní sl.

Að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu hefur félagið hlotið nafnið Göng og brú ohf. Félagið er stofnað á grunni Vaðlaheiðarganga hf. og mun það fara með eignarhald og rekstur gangnanna frá og með deginum í dag. Félagið hafi þar með þann rekstrargrunn sem þarf til þess að ýta frekari verkefnum úr vör.

Markmið félagsins sé að flýta fyrir þjóðhagslega mikilvægum samgönguframkvæmdum, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra.

Fjármögnun félagsins og verkefna þess mun byggjast að mestu á notendagjöldum og lánsfjármögnun á almennum markaði en einnig er heimilt að sækja fjármagn frá aðilum eins og lífeyrissjóðum eða öðrum sérhæfðum fjárfestum.

„Göng og brú fylgir fyrirmyndum á hinum Norðurlöndunum þar sem sambærileg félög hafa lagt grunn að langtímahugsun og samfellu í jarðgangnagerð og öðrum stórum framkvæmdum. Mikilvægi félagsins sést ekki síst í því að 9 ár eru liðin frá því síðustu framkvæmdir hófust við gangnagerð á Íslandi,“ segir í tilkynningunni.

Alþingi muni hafa stefnumótandi aðkomu í gegnum samgönguáætlun þar sem verkefni sem félaginu stendur til boða að taka að sér verða tilgreind sérstaklega. Auk Vaðlaheiðarganga er í lögunum heimilt að fela félaginu eignarhald á brú yfir Hornafjarðarfljót og Ölfusárbrú. Þá er ráðgert að félagið muni sjá um framkvæmdir á Fljótagöngum.

„Með þessu móti verður unnt að setja aukinn kraft í stórframkvæmdir í samgöngum og skapa sjálfstæða, stöðuga og faglega fjármögnun þeirra til framtíðar.“

Heimild: Vb.is

Efni: Innviðafélag ríkisins verður Göng og brú