Home Fréttir Í fréttum Niðurrif Flataskóla í Garðabæ á undan áætlun

Niðurrif Flataskóla í Garðabæ á undan áætlun

205
0
Myndir: H2Orka ehf.

Niðurrif Flataskóla í Garðabæ á undan áætlun

Framkvæmdir við niðurrif eldri hluta Flataskóla í Garðabæ ganga samkvæmt áætlun – og jafnvel betur en það. Samkvæmt upplýsingum frá verktakanum H2Orku er verkefnið nú talsvert á undan verkáætlun.

Unnið er að niðurrifi eldri byggingarhluta skólans, þar á meðal suðurálmu og hluta miðálmu, sem eru samtals um 1.170 fermetrar að stærð. Verkið hófst fyrr í sumar og hefur gengið vel, meðal annars vegna góðrar samvinnu allra sem koma að framkvæmdinni.

„Verkefnið við niðurrif á hluta Flataskóla Garðabæ gengur framar vonum og erum við hjá H2Orku talsvert á undan áætlun. Þökk sé flottu starfsfólki og góðri samvinnu við eftirlitsaðila og verkkaupa,“ segir í færslu H2Orku á Facebook.

Framkvæmdin var boðin út fyrr á árinu og sér VSB Verkfræðistofa um eftirlit með verkinu. Að niðurrifi loknu verður lagður grunnur að áframhaldandi uppbyggingu og endurnýjun skólasvæðisins.

Áætlað er að niðurrifsframkvæmdum verði lokið fyrir miðjan ágúst 2026.

Heimild: H2Orka ehf.