Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans
Skólastjóri Laugalækjaskóla segir það mikinn létti að ráðist verði í leka- og mygluviðgerðir á skrifstofugangi skólans í sumar en í vor leit allt út fyrir að ekki myndi verða af framkvæmdunum.
Í vor sendi Jón Páll Haraldsson, skólastjóri Laugalækjaskóla, frá sér fréttaskeyti þar sem fram kom að starfsfólki skólans væri „illa brugðið“ vegna þess að á síðustu stundu hefði komið í ljós að ekki hefði tekist að fjármagna fyrirhugaðar leka- og mygluviðgerðir á skrifstofugangi skólans.
Í samtali við mbl.is segir Jón Páll að fréttirnar hafi komið starfsfólki skólans að óvörum. Þau hafi ekkert skynjað annað en að það væri búið að fjármagna framkvæmdirnar. „Þegar við ætluðum að fara að tæma skrifstofurnar var okkur sagt að ekki hefði fengist fjármagn í þetta,“ segir hann.
Verktakinn hafi meira að segja verið búinn að útvega mannskap í verkið.

Þurftu virkilega á þessu að halda
Nýlega sendi Jón Páll þó frá sér annað fréttaskeyti og í þetta sinn var tilefnið gleðilegra. Þá tilkynnti hann þær gleðifréttir að framkvæmdirnar á skrifstofuganginum gætu sannarlega hafist í sumar.
Í bréfinu sagði hann heilsu starfsfólks almennt ekki vera til opinberrar umfjöllunar en leyfði sér að segja að starfsfólk skólans hefði „virkilega þurft á þessu að halda“.
Hann segir það gríðarlegan létti að farið verði í framkvæmdirnar í sumar. Í bréfi sínu þakkaði hann meðal annars nýrri borgarstjórn og foreldrum barna við skólann fyrir stuðninginn, viðbrögðin og að vekja athygli á þeirri óvæntu stöðu sem upp kom.
Foreldrar hæstánægðir
Katrín Atladóttir, foreldri við Laugalækjaskóla, segir það hafa verið ákveðið áfall þegar tilkynnt var í vor um að ekki hefði tekist að fjármagna framkvæmdirnar.
Lýsir hún óánægju yfir því að málið hafi ekki komið í ljós fyrr en eftir kosningar en þakkar nýjum meirihluta í Reykjavíkurborg fyrir að „ganga hreint til verks og hugsa um íbúana í borginni“.
Að lokum segir hún foreldra við skólann vera „heldur betur“ ánægða með að farið verði í framkvæmdirnar í skólanum.
Heimild: Mbl.is
Efni: Mikill léttir fyrir starfsfólk skólans












