Home Fréttir Í fréttum Borgin viðurkennir veruleg mistök

Borgin viðurkennir veruleg mistök

57
0
Borgin viðurkennir veruleg mistök
Skýrsla IER staðfestir djúpstæðan vanda í stjórnsýslu borgarinnar. Morgunblaðið/Anton Brink

Borgin viðurkennir veruleg mistök

„Ég tel að niðurstöðurnar séu afar þýðingarmiklar fyrir íbúa í Árskógum og Búseta og staðfesta í raun þá gagnrýni og ábendingar sem við höfum lagt fram á byggingartíma hússins,“ segir Erlendur Gíslason lögmaður Búseta um úttekt Innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar (IER) vegna vöruhússins við Álfabakka 2a.

„Úttektin sýnir að alvarlegir annmarkar hafa verið á fleiri en einu stigi málsins. Við höfum haldið því fram að viðeigandi lögum og reglum hafi ekki verið fylgt við ákvarðanatöku, málsmeðferð hafi verið ábótavant og að ekki hafi verið nægilega gætt að réttindum þeirra sem urðu fyrir áhrifum af framkvæmdinni. Nú liggur sú staðfesting fyrir frá aðila sem borgin sjálf fól verkefnið.“

Heimild: Mbl.is