Home Fréttir Í fréttum Síldarvinnslan stækkar skrifstofuhús sitt í Neskaupstað

Síldarvinnslan stækkar skrifstofuhús sitt í Neskaupstað

19
0
Síldarvinnslan stækkar skrifstofuhús sitt í Neskaupstað
Framkvæmdir hafnar við lyftuhús og tæknirými. Myndin er tekin 6. maí. Ljósm. Guðmundur H. Sigfússon

Síldarvinnslan stækkar skrifstofuhús sitt í Neskaupstað

Síldarvinnslan hf. stendur nú að umfangsmikilli stækkun skrifstofuhúsnæðis síns við Hafnarbraut 6 í Neskaupstað. Með framkvæmdunum verður reist ný hæð ofan á núverandi hús auk þess sem byggt verður sérstakt lyftuhús og tæknirými vestan við bygginguna.

Skrifstofur Síldarvinnslunnar hafa verið á efri hæð hússins frá árinu 1990, en áður var starfsemin til húsa í Steininum við Egilsbraut 8 frá árinu 1968. Á neðri hæð hússins eru skrifstofur Samvinnufélags útgerðarmanna og Súnbúðin.

Þakið farið af húsinu. Myndin er tekin 3. júní. Ljósm. Guðmundur H. Sigfússon

Starfsfólk flutti tímabundið úr húsinu

Framkvæmdir hófust í maímánuði og í lok sama mánaðar flutti starfsfólk fyrirtækisins tímabundið úr húsnæðinu. Á meðan framkvæmdum stendur hefur starfsfólki verið komið fyrir í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar og í skrifstofuklasanum Múlanum í Neskaupstað.

Fyrsta einingin hífð á sinn stað. Myndin er tekin 22. júní. Ljósm. Guðmundur H. Sigfússon

Krosslímt timbur frá Austurríki

Nýja hæðin verður alls um 385 fermetrar að stærð og verður byggð úr krosslímdum timbureiningum (CLT) sem framleiddar eru í Austurríki fyrir Element ehf. í Reykjavík.

Notkun krosslímds timburs hefur aukist á undanförnum árum í íslenskum mannvirkjum þar sem efnið býður upp á létta byggingu, hraða uppsetningu og góða umhverfiseiginleika.

Fyrsti hluti þriðju hæðarinnar risinn. Myndin er tekin 23. júní. Ljósm. Guðmundur H. Sigfússon

Fjöldi verktaka kemur að verkinu

Nestak ehf. er aðalverktaki framkvæmdarinnar en auk þess koma fjölmargir verktakar að verkefninu:

  • Fjarðalagnir ehf.
  • G. Skúlason ehf.
  • Launafl ehf.
  • VÁP ehf.
  • Haki ehf.
  • TryggerX ehf.
  • Laugardalshólar ehf.
  • Litasýn ehf.

Guðmundur Helgi Sigfússon tæknifræðingur hefur umsjón með framkvæmdinni og Björgvin Már Eyþórsson hjá Nestaki gegnir hlutverki byggingarstjóra.

Þannig mun húsið að Hafnarbraut 6 líta út að framkvæmdum loknum

Verklok áætluð næsta vor

Gert er ráð fyrir að framkvæmdum ljúki í maímánuði á næsta ári. Að þeim loknum mun Síldarvinnslan fá aukið og nútímalegt skrifstofuhúsnæði sem styrkir starfsemi félagsins í Neskaupstað og bætir vinnuaðstöðu starfsfólks.

Heimild: SVN.is

Efni: Síldarvinnslan stækkar skrifstofuhús sitt í Neskaupstað