Home Fréttir Í fréttum Opnun Hornafjarðarfljótabrúar langþráð en há veggjöld komi á óvart

Opnun Hornafjarðarfljótabrúar langþráð en há veggjöld komi á óvart

104
0
Opnun Hornafjarðarfljótabrúar langþráð en há veggjöld komi á óvart
Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornarfjarðar, og Hornarfjarðarfljótabrú. Samsett mynd. – Samsett

Opnun Hornafjarðarfljótabrúar langþráð en há veggjöld komi á óvart

Bæjarstjóri Hornafjarðar segir það hápólitískt ef veggjöld eiga að vera hærri í fámennari sveitarfélögum en fjölmennum. Hringvegurinn styttist um 12 kílómetra með opnun brúar yfir Hornafjarðarfljót.

Bæjarstjóri Hornafjarðar segir opnun brúar yfir Hornafjarðarfljót langþráða. Hringvegurinn styttist um 12 km í dag þegar brúin og nýr vegur verða opnuð í dag.

„Þetta er í raun og veru vegur sem þjappar samfélaginu saman, auðveldar fólki vestan fljóta að sækja ýmsa þjónustu hingað til Hafnar, og íbúum hér á Höfn að sækja atvinnu vestur yfir fljót,“ segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri í Hornafirði.

Framkvæmdin um Hornafjarðarfljót er sú fyrsta sem fjármögnuð er í samræmi við lög um samvinnuverkefni og þar verða rukkuð veggjöld frá 1. september. Hjalti segir það ekki koma á óvart að veggjöld verði rukkuð.

„Það kom okkur hins vegar á óvart hversu há þau verða. Við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort þetta sé stefnan að fámennari staðir þurfi að greiða hærri veggjöld heldur en þá fjölmennari,“ segir Hjalti.

„Eins og ég skil þetta þá er hluti af því sem liggur til grundvallar veggjaldinu áætlun Vegagerðarinnar um hversu margir fara um nýja veginn. Það er alveg ljóst til dæmis að það fara mikið færri um þennan veg heldur en um nýja Ölfusárbrú.“

Hjalti segir en það eigi eftir að koma betur í ljós þegar innviðafélag verður sett á laggirnar.

„Þetta er hápólitísk spurning,“ segir hann.

Við ræddum einnig við vegfarendur í Höfn. Þeir tóku undir með bæjarstjóranum um að opnun brúarinnar væri mikil samgöngubót, og höfðu ýmislegt að segja um útfærslu veggjalda.

Heimild: Ruv.is