Home Fréttir Í fréttum 10.07.2026 Lagnaframkvæmdir við Lónsbraut og Hvaleyrarbraut boðnar út í Hafnarfirði

10.07.2026 Lagnaframkvæmdir við Lónsbraut og Hvaleyrarbraut boðnar út í Hafnarfirði

59
0
Lagnaframkvæmdir við Lónsbraut og Hvaleyrarbraut boðnar út í Hafnarfirði
Mynd: Hafnarfjörður

Lagnaframkvæmdir við Lónsbraut og Hvaleyrarbraut boðnar út í Hafnarfirði

Hafnarfjarðarbær, HS Veitur, Veitur, Ljósleiðarinn og Míla hafa auglýst útboð vegna umfangsmikilla lagnaframkvæmda við Lónsbraut og Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði.

Um er að ræða sameiginlegt verkefni sveitarfélagsins og veitu- og fjarskiptafyrirtækja sem styður við áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu.

Verkið felst annars vegar í tengingu bátaskýla við fráveitukerfi Hafnarfjarðar og hins vegar í uppbyggingu innviða vegna nýrra þéttingarreita við Hvaleyrarbraut og Lónsbraut.

Framkvæmdirnar ná til lagningar fjölbreyttra veitukerfa, þar á meðal:

  • Fráveitulagna
  • Neysluvatnslagna
  • Hitaveitulagna
  • Rafveitulagna
  • Fjarskiptalagna

Verkkaupar verkefnisins eru Hafnarfjarðarbær, HS Veitur, Veitur, Ljósleiðarinn og Míla, sem standa sameiginlega að uppbyggingu innviða á svæðinu.

Framkvæmdirnar eru mikilvægur þáttur í áframhaldandi þróun hafnarsvæðisins og uppbyggingu nýrra byggingarreita við Hvaleyrarbraut og Lónsbraut.

Útboðsgögn eru aðgengileg rafrænt án endurgjalds í útboðskerfi NTI Bidco frá 23. júní 2026.

Heimild: Hafnarfjarðarbær