HMS kynnir umfangsmiklar breytingar á byggingarreglugerð
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) boðar til opins kynningarfundar fimmtudaginn 25. júní klukkan 14:00 þar sem fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð verða kynntar. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu HMS í Borgartúni 21 kl. 14:00, en einnig er hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi.
Breytingarnar eru hluti af heildstæðu átaki stjórnvalda sem miðar að því að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, bæta skilvirkni í stjórnsýslu og skapa hagstæðari skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissara og áhættumiðaðra byggingareftirliti.
Markmiðin með breytingunum
Með endurskoðun byggingarreglugerðar er stefnt að því að:
- Auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins.
- Fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur.
- Innleiða áhættumiðað byggingareftirlit.
- Styrkja neytendavernd og draga úr byggingargöllum.
- Lækka byggingarkostnað.
- Stuðla að aukinni nýsköpun í mannvirkjagerð.
- Einfalda leyfis- og eftirlitsferla.
Félags- og húsnæðismálaráðherra mun ávarpa fundinn og í framhaldinu munu sérfræðingar HMS fara yfir helstu breytingar sem fyrirhugaðar eru á reglugerðinni.
Mikilvægar breytingar fyrir byggingargeirann
Fyrirhugaðar breytingar geta haft veruleg áhrif á starfsemi sveitarfélaga, byggingarfulltrúa, hönnuða, verktaka, byggingarstjóra og fasteignaþróunaraðila. Sérstaklega er horft til þess að færa eftirlit og stjórnsýslu meira yfir í áhættumat í stað almennra og einsleitra krafna.
Fundurinn er því líklegur til að vekja mikinn áhuga meðal þeirra sem starfa við hönnun, framkvæmd, eftirlit og uppbyggingu mannvirkja.
Heimild: HMS.is
Efni: HMS kynnir umfangsmiklar breytingar á byggingarreglugerð












