Home Fréttir Í fréttum Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum

Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum

18
0
Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum
Hekluhúsið á Laugavegi verður rifið og er það hluti af uppbyggingu á Heklureitnum á Laugavegi 174. Gert er ráð fyrir bílastæðum í kjallara. mbl.is/sisi

Hekluhúsið víkur fyrir nýjum íbúðum

Byggingarfulltrúinn í Reykjavík hefur samþykkt niðurrif Hekluhússins við Laugaveg 174. Húsið er 5.620 fermetrar og hýsti starfsemi bílaumboðsins Heklu í áratugi. Samkvæmt deiliskipulagi verða byggðar þarna íbúðir auk verslunar- og þjónustuhúsnæðis, u.þ.b. 20 þúsund fermetrar ofanjarðar auk bílastæða í kjallara.

Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri M3 fasteignaþróunar, segir að Hekla verði þarna út júlí með húsnæðið á sínum snærum og reiknar með að niðurrif geti hafist í ágúst.

Spurður hvað byggðir verða margir fermetrar á lóðinni segir Örn að húsin liggi yfir fleiri en eina lóð þannig að það sé erfitt að segja nákvæmlega til um það.

Heimild: Mbl.is