Home Fréttir Í fréttum Draumur um hótel við Miðbakkann endan­lega úr sögunni

Draumur um hótel við Miðbakkann endan­lega úr sögunni

31
0
Draumur um hótel við Miðbakkann endan­lega úr sögunni
Teikning sem fylgdi umsókn Yrkis arkitekta fyrir hönd GE 11 ehf., dótturfélags Berjaya á Íslandi, til til skipulagssviðs Reykjavíkurborgar árið 2020. Ljósmynd: Yrki Arkitektar

Draumur um hótel við Miðbakkann endan­lega úr sögunni

Berjaya hótelfélagið hefur selt fasteignina að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina fyrir 1,3 milljarða króna.

Haftæknifyrirtækið Rafnar ehf. hefur fest kaup á fasteigninni að Geirsgötu 11 á Miðbakka við Gömlu höfnina í Reykjavík af malasísku hótelsamstæðunni Berjaya fyrir 1.290 milljónir króna.

Dótturfélag Berjaya keypti fasteignina árið 2019 af Fiskitangi og Útgerðarfélagi Reykjavíkur, sem eru að stærstum hluta í eigu Guðmundar Kristjánssonar, forstjóra Brims.

Hótelfélagið var með hugmyndir um að byggja fimm stjörnu Four Seasons hótel með 150 herbergjum á lóðum nr. 11, 13 og 15 við Geirsgötu en komst ekki að samkomulagi við borgina um uppbygginguna.

Lóðareigandinn, Faxaflóahafnir sem er jafnframt eigandi Geirsgötu 13 og 15, tók hins vegar neikvætt í erindi félagsins. Forsvarsmenn Faxaflóahafna sögðu að félagið hefði ekki áform um að fara í uppbyggingu á Miðbakka umfram það sem sýnt væri í gildandi skipulagslýsingu og að forgangsraða ætti uppbyggingu á hafnarsvæðum sem þjóni hafnsækinni starfsemi.

Tryggvi Þór Herbertsson, þáverandi stjórnarformaður Berjaya á Íslandi sem hét þá Icelandair Hotels, sagði í viðtali við ViðskiptaMoggann árið 2020 að hann hefði fundað með Vincent Tan árið 2018 sem lýsti áhuga á að reisa Four Seasons hótel á Íslandi, sem hefði verið fjárfesting upp á 40 milljarða króna.

„Hann sagði við mig að hann hefði verið að undirbúa uppbyggingu Four Seasons-hótels í Dublin á Írlandi en eftir komuna hingað vildi hann fremur vinna að þessu verkefni hér á Íslandi. Hann spurði mig hvort ég væri tilbúinn til þess að taka verkefnið áfram með honum, finna því stað sem hentaði og væri framúrskarandi. Ég lýsti strax áhuga á að gera tilraun með þetta og ræddi í kjölfarið við Guðmund í Brimi og það endaði með því að dótturfélag Berjaya var nokkrum mánuðum síðar búið að kaupa skemmurnar niðri á Miðbakka í Reykjavík.“

Sem fyrr segir náðist þó aldrei samkomulag um uppbygginguna og ekkert varð því úr áformunum. Berjaya verður með 11 hótel í rekstri eftir að leigusamningur við Reiti vegna hótela Hilton Reykjavík Nordica á Suðurlandsbraut og Reykjavík Natura Hotel á Nauthólsvegi rennur út 1. september næstkomandi.

Berjaya á Íslandi festi kaup á Geirsgötu 11 árið 2019.
© Morgunblaðið/sisi (Morgunblaðið/sisi)

Í lok árs 2023 tryggði Rafnar sér leigu á meirihluta húsnæðisins eftir að hafa verið með aðstöðu þar í tvö ár, eins og Morgunblaðið greindi frá.

Kaupin á Geirsgötu 11 eru gerð í gegnum félagið Rafnar fasteignir ehf., sem er systurfélag Rafnars ehf. Bæði félög er í eigu OK eignarhaldsfélags sem er í meirihlutaeigu fjölskyldu Össurar Kristinssonar heitins. Útgerðarfélag Reykjavíkur er næst stærsti hluthafinn með 25% eignarhlut.

Rafnar vinnur að því að auka aðgengi að úthöfunum með þróun nýrra haftæknilausna. Upphafið að stofnun fyrirtækisins var uppfinning Össurar Kristinssonar, ÖK Hull skipsskrokkurinn.

Heimild: Vb.is

Efni: Draumur um hótel við Miðbakkann endan­lega úr sögunni