Home Fréttir Í fréttum 2,5 milljarða hagnaður Klasa

2,5 milljarða hagnaður Klasa

78
0
2,5 milljarða hagnaður Klasa
Ingvi Jónasson er framkvæmdastjóri Klasa. Ljósmynd: Eyþór Árnason

2,5 milljarða hagnaður Klasa

Hagnaður ársins var að langmestu tilkominn vegna matsbreytinga fjárfestingareigna.

Fasteignaþróunarfélagið Klasi hagnaðist um 2,5 milljarða króna á síðasta ári en til samanburðar nam hagnaður ársins 2024 2 milljörðum króna.

Hagnaður ársins var að langmestu tilkominn vegna matsbreytinga fjárfestingareigna sem námu rétt rúmum 3 milljörðum á síðasta ári en voru 2,7 milljarðar árið áður. Tekjur félagsins námu 620 milljónum í fyrra og jukust um 176 milljónir frá fyrra ári, eða 40%. Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu nam 166 milljónum en árið áður nam rekstrartap fyrir matsbreytingu 44 milljónum.

Eignir Klasa námu 25 milljörðum króna í lok síðasta árs, skuldir 6,7 milljörðum og eigið fé 18,2 milljörðum.

Í ársreikningi segir að þróunar- og uppbyggingarverkefni hafi gengið vel á árinu 2025. Félög innan samstæðu Klasa vinni nú m.a. að uppbyggingu 133 íbúða á Borgarhöfða, byggingu skrifstofuhúsnæðis í Silfursmára og byggingu 10.000 fermetra skrifstofuhúsnæðis á Ártúnshöfða. Klasi hafi á árinu skilað inn teikningum fyrir öll verkefni félagsins að Borgarhöfða en þar séu í undirbúningi uppbygging yfir 600 íbúða, yfir 30.000 fermetra atvinnuhúsnæðis ásamt 1.000 bílastæðum í bílakjöllurum.

„Framkvæmdum og sölu íbúða fyrir félagið Smárabyggð lauk á árinu. Klasi vann jafnframt áfram að frekari þróun á lóðum félagins sem eru í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Lóðir í Reykjavík eru í skipulagsferli á grundvelli þróunarsamninga,“ segir í skýrslu stjórnar í ársreikningi.

Hagar, Heimar og einkafjárfestar

Hagar og Heimar, sem bæði eru skráð í Kauphöllina, eiga hvort um sig þriðjungshlut í Klasa. Eftirstandandi þriðjungshlutur er svo í eigu KLS eignarhaldsfélags. Sigla ehf., fjárfestingafélag Tómasar Kristjánssonar, á 46,5% hlut í síðastnefnda félaginu. Snæból ehf., fjárfestingafélag hjónanna Finns R. Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur, á jafn stóran hlut í KLS eignarhaldsfélagi. Stotalækur ehf. sem er í eigu Ingva Jónassonar, framkvæmdastjóra Klasa, á 5% hlut og loks á Ljónslappi ehf., félag í eigu Halldórs Eyjólfssonar og Sesselju Sigurborgar Ómarsdóttur, 2% hlut.

KLS eignarhaldsfélag hagnaðist um rétt rúman milljarð króna í fyrra rétt eins og árið áður. Liðurinn áhrif hlutdeildarfélaga hafði þar mest að segja og nam 874 milljónum en þar af stóð Klasi undir 846 milljónum. Bókfært verð eignarhlutarins í Klasa nam 6,1 milljarði í lok síðasta árs.

Heimild: Vb.is