Home Fréttir Í fréttum Tvöfalda afkastagetu Sæbrautar með stokki

Tvöfalda afkastagetu Sæbrautar með stokki

29
0
Tvöfalda afkastagetu Sæbrautar með stokki
Göngubrú var gerð yfir Sæbraut. Stefnt er að því að setja götuna í stokk. RÚV – Ragnar Visage

Tvöfalda afkastagetu Sæbrautar með stokki

Um 7.500 bílar geta keyrt um Sæbraut þegar hún er komin í stokk. Það er tvöfalt á við núverandi afkastagetu götunnar. Ráðgert er að um fimm þúsund manns á klukkustund fari um skiptistöð Borgarlínu sem á að gera ofan á stokknum.

Stjórnvöld gera ráð fyrir að afkastageta Sæbrautar tvöfaldist þegar hún verður sett í stokk. Einnig er gert ráð fyrir að um 33 þúsund farþegar fari um skiptistöð Borgarlínu sem á að reisa ofan á stokknum þegar hún verður komin í fulla notkun 2040.

Þetta kemur fram í svari Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra við fyrirspurn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hann spurði út í afkastagetu Sæbrautar og umferð um Borgarlínu þegar komið er fram á árið 2040.

Stefnt er á að setja Sæbraut í stokk á 850 metra kafla. Þar verða tvær akreinar í hvora átt og aðreinar og fráreinar sem tengjast gatnamótum. Því er gert ráð fyrir að í stokknum verði að jafnaði þrjár akreinar í hvora átt.

„Áætlað er að afkastageta (ökutæki á klst.) Sæbrautar á þessum kafla rúmlega tvöfaldist frá því sem nú er með tilkomu stokksins,“ segir í svari ráðherra. Þá er gert ráð fyrir að Sæbraut anni 7.500 bílum á klukkustund á þessum kafla. Gert er ráð fyrir að umferðin verði 5.000 bílar á klukkustund á annatímum. Þar er gert ráð fyrir að tilkoma Sundabrautar hafi veruleg áhrif á ferðamynstur um Sæbraut.

Ráðgert er að 78 strætisvagnar á klukkustund aki eftir Borgarlínu yfir Sæbrautarstokk þegar komið er fram á árið 2040. Það eru vagnar á sex leiðum. Spár benda til þess að 33 þúsund manns fari um skiptistöð á Sæbrautarstokki og sérakreinar Borgarlínu daglega, yfir fimm þúsund á klukkustund.

Heimild: Ruv.is

Efni: Tvöfalda afkastagetu Sæbrautar með stokki