Selur eitt dýrasta hús London með miklum hagnaði
Eigandi The Holme í Regent’s Park er að selja stórhýsið með milljarða hagnaði, tveimur árum eftir að hafa keypt eignina.
Eigandi eins dýrasta stórhýsis Lundúna er langt komin með sölu á eigninni innan við tveimur árum frá því að hann eignaðist hana.
Umrætt 40 svefnherbergja stórhýsi, sem er þekkt sem The Holme, er staðsett í Regent’s Park í London. Félag skráð í Lúxemborg festi kaup á eigninni fyrir 139 milljónir punda, eða sem nam þá 24 milljörðum króna, í lok árs 2024. Ekki er vitað hver endanlegur eigandi er.
Samkvæmt heimildum Financial Times er viðkomandi langt komin í viðræðum um sölu á eigninni fyrir tæplega 190 milljónir punda eða um 31,5 milljarða króna. Gangi það eftir yrðu þetta ein dýrustu fasteignaviðskipti í sögu íbúðamarkaðarins í London.
Þegar er búið að skiptast samningum og talið er að viðskiptin verði frágengin á næstu vikum. Eignin hafði ekki verið auglýst til sölu. Leynd ríkir einnig yfir hver er á kauphliðinni.
Í umfjöllun FT segir að þrátt fyrir háan verðmiða nær The Holme – sem var áður í eigu meðlims konungsfjölskyldunnar í Sádi-Arabíu – ekki að komast efst á listann yfir dýrastu hús London.
Dýrustu fasteignaviðskiptin á íbúðamarkaðnum í London áttu sér stað fyrr í ár þegar fasteignamógúllinn Nick Candy, sem er gjaldkeri Reform, seldi stóhýsi sitt í Chelsea-hverfinu fyrir meira en 275 milljónir punda til Suneil Setiya, stofnanda Quadrature Capital.
Heimild: Vb.is
Efni: Selur eitt dýrasta hús London með miklum hagnaði












