Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka
Fyrirspurn Grímu arkitekta fyrir hönd eigenda Álfabakka 8 um að leggja niður kvöð um gönguleið meðfram austurhlið hússins hefur verið neitað af skipulagsfulltrúa Reykjavíkur.
Metnaðarmiklar framkvæmdir eru á döfinni við gamla kvikmyndahúsið í Mjódd en áður hefur verið fjallað um leyfisumsókn eigendanna fyrir rúmlega sex þúsund fermetra stækkun á húsinu.
Tók skipulagsfulltrúi jákvætt í þá fyrirspurn.
Fá ekki að sleppa við gönguleiðina
Í fyrirspurn Grímu arkitekta var kveðið á um að leggja niður kröfu um gönguleið meðfram húsinu til að gera ráð fyrir loftglugga.
Skipulagsfulltrúi gaf ekki heimild fyrir þessari breytingu. Þá er talið að gönguleiðin sé mikilvæg til þess að halda „góðu og greiðu aðgengi að torginu“ að því er kemur fram í umsögn skipulagsfulltrúa.
Hinsvegar féllst skipulagsfulltrúi á að fella niður kröfu um gönguumferð á milli nýbyggingar og húsnæðis.
Einnig kom fram að taka skuli tillit til sérkenna hússins eins og það er í dag og að leitast eigi eftir því að halda „halda sem best í heildarsvip hússins.“
Verklok áætluð árið 2027
Fram kemur á vefsíðu Eignabyggðar að til standi að breyta gamla kvikmyndahúsinu í nútímalegt skrifstofu- og þjónustuhúsnæði.
Verður byggingin stækkuð í alls 9.600 fermetra og mun hún bjóða upp á ýmsa fjölbreytta möguleika fyrir fyrirtæki og þjónustuaðila.
Áætlað er að framkvæmdum ljúki árið 2027.
Heimild: Mbl.is
Efni: Mega ekki fella niður gönguleið í Álfabakka












