
Segir sögu húsanna á Akureyri
Húsin á Akureyri, saga þeirra og fólksins sem þar hefur búið er sérsvið í sögugrúski Arnórs Blika Hallmundssonar. Hann hefur á síðustu árum tekið saman margvíslegan fróðleik um byggingar í eldri hverfum Akureyrar, þar sem er að finna minnst 70 hús byggð á 18. öld.
Í bænum eru svo kynstrin öll af húsum reistum á 19. öldinni og þegar kom fram á fyrstu ár 20. aldarinnar fór bærinn, fullur af húsum, að mótast í þeirri mynd sem þekkist í dag.
„Ég flutti með fólkinu mínu framan úr Eyjafjarðarsveit hingað á Akureyri og hef alla tíð haft óskaplega þörf fyrir að kynna mér staðreyndir umhverfis míns. Í Eyjafirði kynnti ég mér hvað fjöllin hétu og hvað þau voru há.
Mínir helstu áhrifavaldar af skjánum á þessum árum voru meðal annars Ómar Ragnarsson og David Attenborough,“ segir Arnór Bliki sem er umhverfisfræðingur að mennt og kennari við Verkmenntaskólann á Akureyri.
Heimild: Mbl.is











