Framkvæmdir við nýja Ölfusárbrú við Selfoss halda áfram af fullum krafti og gengur vinna við uppstillingu fyrstu stálbitanna vel samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.

Fyrstu stálbitarnir fyrir brúna voru fluttir til landsins í apríl og er von á næsta skipi með stálbitum seinnipartinn í júní. Bitarnir verða fluttir til Þorlákshafnar og verða þá allir stálbitar brúarinnar komnir til landsins. Stálbitarnir eru framleiddir í verksmiðjum Norvik í Póllandi.

Byrjað hefur verið að rafsjóða samtengingar bitanna og samhliða því er unnið að því að koma lagnakerfi fyrir inni í brúargrindinni. Í brúna verða meðal annars lagðar lagnir fyrir heitt og kalt vatn, háspennustrengi og ljósleiðara. Gert er ráð fyrir að öllum lögnum verði komið fyrir áður en brúargrindin verður færð yfir Ölfusá.
Starfsmönnum á framkvæmdasvæðinu hefur fjölgað samhliða auknum umsvifum og eru nú um 60 starfsmenn við störf á svæðinu.

Unnið við stöpla og vegtengingar
Lokið hefur verið við að steypa undirstöður landstöpla brúarinnar og stendur nú yfir vinna við uppslátt stöplanna ofan á undirstöðurnar.
Í Laugardælaeyju hefur neðri hluti undirstaða turnsins verið steyptur og er nú unnið við uppslátt og járnbendingu fyrir efri hluta undirstöðunnar.
Austan við Selfoss er jafnframt unnið að byggingu vegbrúar yfir nýjan hluta Hringvegarins.

Jarðvinna og undirbúningur vegagerðar í fullum gangi
Vinna við jarðvegsskipti og lagnaskurði austan Ölfusár er komin vel á veg og stefnt er að því að hefja fljótlega útlögn styrktar- og burðarlaga undir malbik.

Vestan Ölfusár heldur áfram vinna við fergingar vegstæðisins í Hellismýri á um 700 metra kafla, en áætlað er að fargið verði á sínum stað fram á næsta ár.
Þá er einnig unnið við skeringar í vegstæði, jarðvinnu fyrir undirgöng undir Hringveg við Einholtsveg, gröft lagnaskurða og tilfærslu lagna veitustofnana.

Óviðkomandi umferð bönnuð á framkvæmdasvæði
Vegna umfangsmikilla framkvæmda er öll óviðkomandi umferð óheimil á framkvæmdasvæðinu. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og sýna aðgát við akstur á svæðinu.
Heimild: Vegagerðin












