Vegagerðin telur að stofnun sérstaks innviðafélags geti gert ábyrgð í vegamálum óljósa og haft neikvæð áhrif á tíma, kostnað og gæði samgönguframkvæmda. Þetta kemur fram í minnisblaði stofnunarinnar um áhrif félagsins á starfsemi Vegagerðarinnar, sem lagt hefur verið fram í fjárlaganefnd Alþingis.
Innviðaráðuneytið óskaði eftir umsögn Vegagerðarinnar um áform um innviðafélag sem ætlað er að flýta uppbyggingu og endurnýjun stofnvegakerfisins. Frumvarp um félagið er nú til meðferðar á Alþingi.
Í minnisblaðinu segir að verði verkefni á borð við Ölfusárbrú, Fljótagöng og Sundabraut færð frá Vegagerðinni til nýs félags megi reikna með að þau tefjist um að minnsta kosti tvö ár. Slíkar tafir myndu ganga gegn yfirlýstum tilgangi með stofnun félagsins.
Vegagerðin gerir einnig athugasemdir við að fjármálaráðherra fari með yfirstjórn félagsins. Stofnunin segir slíkt ganga þvert á fyrirkomulag í Noregi og Danmörku, þar sem samgönguráðherra fari með vald yfir félögum sem komi að samgönguframkvæmdum.
Að mati Vegagerðarinnar væri með þessu verið að tvískipta þekkingu og reynslu sem þegar er til staðar innan stofnunarinnar og byggja upp nýja stjórnsýslu, ábyrgðarkeðjur og lagaumhverfi, með tilheyrandi kostnaði, áhættu og óvissu.
Lesa má nánar um málið á bls.4 í Morgunblaðinu í dag.
Heimild: Mbl.is












