Home Fréttir Í fréttum Fyrsta skóflustungan að þjónustuhúsi á Hellu

Fyrsta skóflustungan að þjónustuhúsi á Hellu

101
0
Ásbjörg, Eggert Valur og Magnús Þór munda skóflurnar. Ljósmynd/Aðsend

Fyrsta skóflustungan tekin að þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hellu

Í gær var tekin fyrsta skóflustungan að nýju þjónustuhúsi Landsvirkjunar á Hella.

Í húsinu verður aðstaða fyrir starfsfólk Enercon, framleiðanda vindmyllanna í Vaðölduveri, auk þess sem þar verður starfsstöð Landsvirkjunar, verkstæði og varahlutageymsla fyrir vindmyllurnar.

500 milljóna framkvæmd

Þjónustuhúsið mun rísa á lóð Landsvirkjunar við Faxaflatir 2. Verktakafyrirtækið Alefli bauð lægst í framkvæmdina en heildarkostnaður verkefnisins er áætlaður um 500 milljónir króna.

Gert er ráð fyrir að húsið verði tilbúið haustið 2027 þegar Vaðölduver verður komið í fullan rekstur.

Ljósmynd/Aðsend

Vindmyllur og atvinnuuppbygging

Eggert Valur Guðmundsson sagði verkefnið mikilvægt fyrir atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu bæði á framkvæmdatíma og eftir að starfsemi hefst.

„Þetta verkefni er mikilvægt fyrir atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu bæði eftir að byggingaframkvædum lýkur, og einnig mun þessi framkvæmd hafa jákvæð samfélagsleg áhrif á byggingatímanum hjá þjónustuaðilum og iðnaðar og verkamönnum,“ sagði Eggert Valur í samtali við Sunnlenska.is.

Tölvugerð mynd af húsinu við Faxaflatir 2.

Viðhald vindmyllanna næstu 15 árin

Vindmylluframleiðandinn Enercon hefur þegar ráðið íslenskt starfsfólk sem hefur fengið sérhæfða starfsþjálfun víða um Evrópu vegna viðhalds á þeim 28 vindmyllum sem verða í Vaðölduveri.

Samkvæmt samningi Landsvirkjunar og Enercon mun fyrirtækið sinna viðhaldi vindmyllanna fyrstu 15 ár rekstrar vindorkuversins.

Heimild: Sunnlenska.is