Framkvæmdir við rannsóknahús Nýs Landspítala á fullum krafti
Framkvæmdir við rannsóknahús Nýr Landspítali halda áfram af fullum krafti og er uppsetning útveggjakerfis nú hafin á öllu húsinu.
Samhliða þeirri vinnu vinnur uppsteypuverktaki að lokafrágangi stáls í flóttastigahúsi og lagfæringu á steyptri þakplötu svo þakverktaki geti hafið framkvæmdir á þeim hluta byggingarinnar.
Lokafrágangur stálvirkis í gangi
Að loknum þeim verkþáttum verður einungis eftir að setja upp stálvirki fyrir þakglugga í miðrými hússins innan uppsteypuverksins.
„Framkvæmdir við rannsóknahúsið halda áfram af fullum krafti. Nú hefur uppsetningaraðili útveggjakerfis hafið uppsetningu á öllu húsinu, samhliða því sem unnið er að lokafrágangi stálvirkis og þeirra þakhluta sem þarf að klára áður en næstu verkþættir taka við,“ segir Árni Kristjánsson.
Áhersla á lokun hússins á næstu misserum
Á næstu misserum verður áfram lögð áhersla á:
- uppsetningu útveggjakerfis
- frágang þaka
- lokun hússins
- undirbúning innri frágangs
- uppsetningu tæknikerfa
Framkvæmdir við rannsóknahúsið eru hluti af uppbyggingu Nýs Landspítala og einu stærsta opinbera byggingarverkefni landsins.
Heimild: NLSH.is












