
Bláa lónið hefur skrifað undir samning við íslenska ríkið um uppbyggingu og rekstur þjónustumiðstöðvar og annarrar atvinnustarfsemi í ferðaþjónustu í Þjórsárdal.
Samningurinn er fyrsta skrefið í uppbyggingu gestastofu í mynni Þjórsárdals þar sem fjölbreytt þjónusta verður í boði fyrir ferðamenn.
Auk starfseminnar í gestastofunni vinnur félagið að uppbyggingu hágæða hótels í Rauðukömbum, Mountain Retreat og Fjallabaðanna.
Heimild: Mbl.is











