Útboð:
Kópavogsbær, kt.700169-3759 óskar eftir verði í verkið:
26033797: Leikskólinn Furugrund 1 – Endurnýjun á þaki
Verkið felst í því í að endurnýja þak á leikskólanum Furugrund í Kópavogi, Þakið er uppstólað, kalt þak. Plata er ekki steypt. Skipta skal um þakjárn, þakpappa og klæðningu á þakkanti. Gert er ráð fyrir að endurnýja þurfi þaktúður að hluta og þakrennur.
Verðfyrirspurnargögn eru aðgengileg í útboðskerfinu Tendsign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt í gegnum kerfið.
| Auglýst: | 05.05.2026 kl. 11:00 |
| Skilafrestur | 19.05.2026 kl. 12:00 |
| Opnun tilboða: | 19.05.2026 kl. 12:01 |
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.












