Þau tvö tilboð sem bárust eftir útboð vegna dýpkunarframkvæmda við bryggju við athafnasvæði Eskju á Leirubakka á Eskifirði voru bæði allnokkuð yfir kostnaðaráætlun og var hafnað af hálfu Fjarðabyggðar.
Dýpkunarframkvæmdir þessar eru hluta af mikilli uppbyggingu við Leirurnar undanfarin ár en farið er að glitta í lok þeirra framkvæmda sem eftirleiðis munu bæta alla aðkomu og aðstöðu við bryggjusvæðið innst í firðinum til muna en þar er útgerðarfyrirtækið Eskja ehf. með mikla starfsemi.
Töluverðu munaði á kostnaðaráætlun hafnarstjórnar og þeim tveimur tilboðum sem bárust í verkið. Hið fyrra var tæplega 130% yfir en hið seinna tæplega 143% yfir þeirra áætlun. Upphafleg kostnaðaráætlun hljóðaði upp á 201 milljón króna svo munurinn er upp á tugmilljónir króna.
Að sögn Birgittu Rúnarsdóttur, verkefnastjóra Fjarðabyggðahafna, segir nú verið að skoða hvaða lausnir eru til staðar en ekkert verið ákveðið að svo stöddu.
Heimild: Austurfrett.is












