Eini verktakinn sem sýndi áhuga á að taka að sér viðhald, viðgerðir og endurnýjun á hluta þaks Grunnskóla Breiðdalsvíkur, sem þörf er orðin á, telur að kostnaður við verkið verði vart undir 60 milljónum króna að lágmarki og mjög líklega aðeins hærri. Reynt skal að ljúka verkinu fyrir skólabyrjun á haustönn.
Margir óvissuþættir eru þó til staðar vegna þessa verks að því er fram kemur í úttekt sem sérfræðingar frá EFLU gerðu í kjölfar skoðunar á þaki skólans fyrir Fjarðabyggð.
Stærsti óvissuþátturinn er að ómögulegt er að meta burðarvirki hússins að fullu fyrr en búið verður að rífa pappa og súð af þakinu. Séu skemmdir þar mun kostnaður aukast því samfara. Þá tiltaka sérfræðingarnir einnig að kostnaður muni aukast enn frekar ef verkið tefst vegna veðurþátta.
Skipulags- og framkvæmdaráð Fjarðabyggðar tók málið fyrir í síðustu viku þar sem fallist var á umrætt tilboð til lagfæringa af þeirra hálfu en bæjarráð þarf að staðfesta slíkt formlega á sínum næsta fundi.
Heimild: Austurfrett.is












