Home Fréttir Í fréttum Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits

Fjárfestar keyptu margar íbúðir í öðrum áfanga Heklureits

58
0
Húsið vinstra megin á myndinni, Laugavegur 170, er nýkomið í sölu. Teikning/ONNO

Örn V. Kjartansson, framkvæmdastjóri félagsins sem byggir Heklureit, segir búið að selja um helming 100 íbúða á Laugavegi 170. Það er 2. áfanginn á Heklureit en leigufélagið Alma keypti margar af smærri íbúðunum á Laugavegi 170.

Með því er búið að selja um 100 íbúðir samanlagt í fyrstu tveimur áföngunum á Heklureit.

Kosta allt að 299 milljónir

Örn segir kynningu á öðrum áfanganum hafa hafist með kynningu á þakíbúðunum en þær kosta 169-299 milljónir króna.

Hann segir hraða uppbyggingarinnar munu taka mið af efnahagsástandinu. Næsti áfangi kallar á niðurrif Hekluhússins og segir Örn mega gera ráð fyrir að reiturinn verði fullbyggður um og eftir árið 2030.

Heimild: Mbl.is