Tinna Björk Hjartardóttir kemur inn í stjórn Dranga fyrir Liv Bergþórsdóttur.
Drangar hafa undirritað samkomulag við KSK eignir ehf. um kaup á 25 fasteignum víðsvegar um land sem telja 22 þúsund fermetra. Afhending fasteignanna er áætluð 1. júní 2026.
Kaupverð fasteignanna nemur 7,3 milljörðum króna og er greitt m.a. með útgáfu hlutafjár til seljanda að virði 1.679 milljónir króna. KSK eignir er dótturfélag Kaupfélags Suðurnesja sem er næst stærsti hluthafi Dranga með 13% hlut.
Í tilkynningu frá Dröngum segir að fram til þessa hafi Samkaup rekið verslanir í fasteignunum sem séu vel staðsettar fyrir verslunarrekstur. Farið verði í endurbætur á eignunum sem verða að stórum hluta nýttar undir verslunarrekstur SPAR, nýja smásölukeðju á íslenskum markaði.
Tinna Björk inn fyrir Liv
Fyrsti aðalfundur Dranga hf. var haldinn í dag þar sem ný stjórn félagsins var kjörin. Í stjórn Dranga sitja:
- Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður
- Garðar Newman
- Hrund Rudolfsdóttir,
- Magnús Ingi Einarsson
- Tinna Björk Hjartardóttir
Tinna Björk, sem kemur ný inn í stjórnina, starfar sem framkvæmdastjóri Arango ehf. og er með B.Sc. í tölvunarfræði frá Háskóla Reykjavíkur. Liv Bergþórsdóttir er fráfarandi stjórnarmaður Dranga.
„Framundan eru áframhaldandi umbætur og samþætting í starfsemi rekstrarfélaganna undir hatti Dranga. Við munum halda áfram að einfalda reksturinn, auka samlegð þar sem færi gefast og bæta arðsemi matvöruhlutans,“ segir Auður Danielsdóttir, forstjóri Dranga.
„Við viljum skerpa á vörumerkjum og breyta ásýnd og yfirbragð eins og verslanir Nettó er dæmi um en þær eru nú að taka á sig djúpgrænan lit. Á sama tíma erum við spennt fyrir því að opna fyrstu SPAR verslunina í júní mánuði. Opnun SPAR verslana er hluti af þeirri stefnu okkar að einfalda og skerpa á vörumerkjum matvöruhlutans og að selja matvöru undir vörumerkjum Prís, Nettó og SPAR.“
Heimild: Vb.is












