Heimar hafa valið tillögu BASALT arkitekta fyrir uppbyggingu nýrrar menningarmiðstöðvar Kópavogs í Smáralind.
Við mat á tillögunum var lögð áhersla á hugmyndafræði, aðgengi, flæði, sveigjanleika og notagildi. Einnig var horft til hagkvæmni, framkvæmdarhæfni, sjálfbærni og nýtingar á núverandi innviðum, sem og samspils Smáralindar við öflugt menningarstarf Kópavogsbæjar, að segir í tilkynningu frá Heimum.

Fyrirhuguð menningarmiðstöð verður staðsett í um 900 m² rými í austurhluta Smáralindar og er henni ætlað að verða opið og lifandi rými sem sameinar bókasafn, viðburðaaðstöðu og skapandi vinnusvæði. Stefnt er að því að menningarmiðstöðin verði opnuð vorið 2027.
Stíga næsta skrefið
Fram kemur að aðsókn í Smáralind hafi aukist um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs, samanborið við sama tímabil í fyrra. Tímabilið sé það aðsóknarmesta frá upphafi. Opnun Mathallarinnar Garðsins hafi haft jákvæð áhrif á aðsóknina en frá opnun í lok nóvember 2025 hafi um 300 þúsund manns snætt þar.

Haft er eftir Baldri Má Helgasyni, framkvæmdastjóra viðskipta hjá Heimum, að stefnan sé að byggja upp og efla kjarnasvæði þar sem fólk geti lifað og leikið á sama tíma.
„Með markvissum fjárfestingum höfum við þróað Smáralind í lifandi áfangastað þar sem verslun, þjónusta, afþreying og veitingar mynda sterka heild og þjóna gestum og íbúum á nærliggjandi svæðum vel. Með nýrri menningarmiðstöð Kópavogs stígum við næsta skrefið í þeirri vegferð sem mun styrkja enn frekar hlutverk Smáralindar sem miðpunktar mannlífs í Kópavogi og á höfuðborgarsvæðinu öllu,“ er haft eftir Baldri í tilkynningunni.
Heimild: Mbl.is












