Home Fréttir Í fréttum 18.05.2026 Sveitarfélagið Hornafjörður. „Fiskhóll – gatnagerð og lagnir“

18.05.2026 Sveitarfélagið Hornafjörður. „Fiskhóll – gatnagerð og lagnir“

38
0
Hornafjörður

Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Fiskhóll – gatnagerð og lagnir“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.

Yfirlit yfir verkið

Um er að ræða endurnýjun lagna og gatnagerð götunnar Fiskhóls á Höfn. Lengd götu er um 135 m, að mestu leiti með gangstétt vinstra megin við götu. Verktaki skal grafa fyrir fráveitulögnum, fylla með burðarhæfu efni, þjappa og koma fyrir fráveitulögnum. Verktaki skal rétta fyllingar af og leggja út afréttingaslag/burðarlag. Gatan og gangstétt skulu undirbúnar undir malbikun. Malbikun gatna og gangstétta er ekki innifalið í þessu verki.

Gert er ráð fyrir að götur verði malbikaðar sumarið/haustið 2026 og skal verktaki gera ráð fyrir að samræma vinnu við götuna með umsjónarmanni verkkaupa.

Umfang helstu verkþátta er:

  • Gröftur út götustæði 675 m3
  • Gröftur fyrir lögnum 780 m3
  • Söndun í skurði 200 m3
  • Fylling í skurði 580 m3
  • Styrktarlag 475 m3
  • Burðarlag (afréttingslag) 115 m3
  • Kantsteinar 270 m
  • Fráveitulagnir 389 m
  • Götubrunnar 16 stk

Sjá nánar í útboðsgögnum.

Framkvæmdartími

Verklok eru áætluð 31.ágúst 2026

Við undirritun samnings skal liggja fyrir greinargóð tímaáætlun um gang verksins, sem unnin er í samráði við verkkaupa og hann samþykkir. Fari verktaki ekki eftir tímaáætluninni og sinni verkinu ekki sem skyldi, hefur verkkaupi rétt til þess að taka verkið í heild af honum.

Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi og verktaki hafa með formlegum hætti undirritað verksamning.

Gögn

Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „FISKHÓLL – gatnagerð og lagnir“. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „FISKHÓLL – gatnagerð og lagnir“.

Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „FISKHÓLL – gatnagerð og lagnir“ – FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.

Rafrænt skil og opnun tilboða

Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en mánudaginn 18.05.2026 kl. 14:00, en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal ráðhús Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal senda með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út.

Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.

Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000.