Sveitarfélagið Hornafjörður, hér eftir nefnt verkkaupi, óskar eftir tilboðum í verkið „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir“ eins og því er lýst í meðfylgjandi gögnum.
Hér er um almennt útboð að ræða og lýtur þeim reglum sem um það gilda. Innifalið í tilboð skal vera allt það sem til þarf að ljúka verkinu eins og er það skilgreint í útboðsgögnum.
Lauslegt yfirlit yfir verkið
Um er að ræða endurnýjun lagna og gatnagerð götunnar Silfurbrautar á Höfn. Lengd götu er um 203 m, með gangstétt beggja megin við götu. Verktaki skal grafa fyrir fráveitulögnum, fylla með burðarhæfu efni, þjappa og koma fyrir fráveitulögnum. Verktaki skal rétta fyllingar af og leggja út afréttingarlag/burðarlag. Gatan og gangstétt skulu undirbúnar undir malbikun. Malbikun gatna og gangstétta er ekki innifalið í þessu verki.
Gert er ráð fyrir að götur verði malbikaðar sumarið/haustið 2026 og skal verktaki gera ráð fyrir að samræma vinnu við götuna með umsjónarmanni verkkaupa.
Umfang helstu verkþátta er:
- Gröftur út götustæði 1.800 m3
- Gröftur fyrir lögnum 1.560 m3
- Söndun 385 m3
- Fylling í skurði 1.175 m3
- Styrktarlag 1.375 m3
- Burðarlag (afréttingslag) 360 m3
- Kantsteinar 411 m
- Fráveitulagnir 549 m
- Götubrunnar 12 stk
Sjá nánar í útboðsgögnum.
Framkvæmdartími
Verklok eru áætluð 31. Ágúst 2026
Við undirritun samnings skal liggja fyrir greinargóð tímaáætlun um gang verksins, sem unnin er í samráði við verkkaupa og hann samþykkir. Fari verktaki ekki eftir tímaáætluninni og sinni verkinu ekki sem skyldi, hefur verkkaupi rétt til þess að taka verkið í heild af honum.
Framkvæmdatími hefst þegar verkkaupi og verktaki hafa með formlegum hætti undirritað verksamning.
Útboðsgögn
Gögn fást afhent rafrænt án endurgjalds með því að senda tölvupóst á utbod@hornafjordur.is og óska eftir því að fá send útboðsgögn í verkið „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir““. Þá verður fljótlega sendur hlekkur til baka á þann stað sem hægt verður að sækja gögnin. Vinsamlegast takið fram í viðfangsefni pósts „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir“.
Frekari fyrirspurnir skal senda á eftirfarandi netfang: utbod@hornafjordur.is og trausti@hornafjordur.is þá merkja í “subject” reitinn: „Silfurbraut – gatnagerð og lagnir“- FYRIRSPURN“. Fyrirspurn skal berast í síðasta lagi 3 virkum dögum fyrir opnunardag tilboðs.
Bjóðendur fá eftirtalin útboðsgögn á rafrænu formi:
- Útboðs- og verklýsing þessi, ásamt tilboðsskrá og drögum að verksamningi.
- Teikningasett á pdf formi.
- Tilboðsskrá á Excel formi.
Líta ber á aðra íslenska staðla eftir því sem við á og vísað er til og einnig Alverk 95 Almenna verklýsingu fyrir vega- og brúargerð, gefið út af Vegagerðinni í janúar 1995, sem hluta útboðsgagna.
Við gerð tilboðs skal miða við að fara að öllu leyti eftir því, sem mælt er fyrir um í byggingar-, heilbrigðis- brunamála- og lögreglusamþykkt eða í annarri löggjöf og fyrirmælum stjórnvalda um aðbúnað á vinnustað, öryggisráðstafanir, ráðstafanir til að koma í veg fyrir truflanir á umferð eða annað þess háttar.
Þar sem útboðs- og verklýsing stangast á við ÍST 30:2012, þá gildir útboðs- og verklýsingin.
Skil og opnun tilboða
Tilboðsgjafar skulu vera búnir að senda inn tilboði á sérstöku formi eigi síðar en mánudaginn 18.05.2026 kl. 14:00, en þá mun opnun tilboða fara fram í fundarsal ráðhús Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Hafnarbraut 27, 780 Höfn. Tilboð ásamt fylgigögnum skal senda með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skulu þau hafa borist áður en skilafrestur er runninn út.
Geti bjóðandi ekki komið útfylltum útboðsgögnum á opnunarstað til opnunar, er heimilt að senda undirritað tilboð ásamt fylgigögnum með tölvupósti á netfangið utbod@hornafjordur.is og skal það hafa borist áður en skilafrestur er runninn út en bjóðandi skal þá jafnframt hafa póstlagt með ábyrgðarpóstsendingu, a.m.k. degi áður en opnun tilboða fer fram, gögn sem fylgja eiga tilboðinu og skal staðfesting þess efnis fylgja með tölvupóstinum. Berist tölvupóstur ekki í tæka tíð fyrir opnun tilboða er það á ábyrgð bjóðanda og telst tilboðið þá ógilt.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum. Tilboð eru bindandi í 5 vikur frá opnunardegi.
Nánari upplýsingar veitir: Trausti Magnússon, trausti@hornafjordur.is sími 470-8000












