Úr fundargerð Bæjarráðs Garðarbæjar þann 28.04.2026
Opnun tilboða í verkið – Stækkun Tónlistarskólans, umsjón og eftirlit.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið “Tónlistarskólinn í Garðabæ – umsjón og eftirlit”:
1. Norconsult Ísland ehf., kr. 15.442.500 (84,9%).
2. Verksýn ehf., kr. 16.912.080 (93,0%).
3. VSÓ Ráðgjöf ehf,. kr. 17.084.100 (93,9%).
4. EFLA hf., kr. 17.503.500 (96,2%).
5. JTV ehf., kr. 18.104.500 (99,5%).
6. Verkís hf., kr. 19.705.790 (108,4%).
7. Ferill ehf., kr. 20.619.655 (113,4%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 18.186.400. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Norconsult Ísland ehf., að fjárhæð kr. 15.442.500 (84,9% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins.












