Útboð:
Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna 2. áfanga lóðarframkvæmda við Kvíslarskóla í Mosfellsbæ.
Verkefnið felst í að útbúa upphitaðan körfuboltavöll í fullri stærð.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Upptaka á yfirborðsefnum 1205 m²
- Girðingar 90 m
- Snjóbræðsluslöngur 2050 m
- Ljósastrengir 240 m
- Ljósastaurar 4 stk
- Hellur 712 m²
- Plastflísar 670 m²
- Grasþökur 120 m²
Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti í gegnum mos@mos.is frá og með 22. apríl 2026.
Tilboðum skal skila á mos@mos.is eigi síðar en kl. 10:30 mánudaginn 11. maí 2026.
Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða sendar bjóðendum og birtar á vef Mosfellsbæjar að opnun lokinni.












