Home Fréttir Í fréttum Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins

Þurftu að flytja sérlega langa bíla til landsins

35
0
„Þetta eru sem sagt hlutar í eina heila vindmyllu og svo turn í þá næstu,“ segir Sigurbjörn um farminn. mbl.is/Eyþór

„Þetta er stórkostlegt,“ segir Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkstjóri Vaðölduvers sem verður fyrsta vindorkuver landsins, spurður hvernig tilfinningin sé að sjá fyrstu einu og hálfu vindmyllu virkjunarinnar komna til landsins.

Vindmylluhlutarnir, sem eru frá þýska framleiðandanum Enercon, komu til landsins í gærkvöldi og voru affermdir í Þorlákshöfn í gærmorgun.

„Þetta eru sem sagt hlutar í eina heila vindmyllu og svo turn í þá næstu,“ segir Sigurbjörn spurður hvað felist í mælieiningunni ein og hálf vindmylla.

Von er á þremur skipum til viðbótar með álíka farm á næstu vikum og í byrjun maí verða fyrstu fjórar vindmyllur svo fluttar að Vaðöldu á Þjórsár- og Tungna­ár­svæðinu.

Sigurgeir Björn Geirsson, yfirverkstjóri Vaðölduvers. mbl.is/Eyþór

Á annað hundrað metrar

En hvað er ein vindmylla stór?

„Þegar hún er samansett með blaðið í efstu stöðu þá er hún 150 metrar. Vindmyllublöðin sem þið sjáið hérna á dekkinu eru 68 metrar og turninn er í kringum 80 metrar en hann kemur í þremur hlutum,“ segir Sigurgeir og bætir við að þá sé óupptalinn ýmis annar búnaður sem þarf í eina vindmyllu.

Það gefur því augaleið að það verður meira en að segja það að flytja vindmyllurnar að Vaðölduveri. 14 myllur verða fluttar þangað í ár og 14 til viðbótar á næsta ári.

„Við erum búin að vera að undirbúa flutningana í góðan tíma með Vegagerðinni og fleiri hagaðilum sem koma að þessu,“ segir Sigurbjörn en til að mynda er búið að flytja nokkur sérlega löng ökutæki til landsins til að flytja myllublöðin.

Þá er búið að leggjast í miklar athuganir á vegum og brúm á leiðinni að Vaðölduveri til að tryggja nægt burðarþol.

Skipið kom til landsins í vikunni. mbl.is/Eyþór

Þaulvanir bílstjórar á bílunum löngu

Á hverri vindmyllu eru þrír vindmylluspaðar og aðeins einn spaði verður fluttur að virkjuninni í einu.

„Við erum svona þrjár nætur að flytja hverja vindmyllu upp eftir í þeim hlutum sem koma. Þetta eru allt yfirstærðarflutningar sem þurfa að fá undanþágu sem Samgöngustofa gefur eftir að hafa leitað ráða hjá Vegagerðinni, lögreglunni, sveitarfélögunum, Landsneti og Rarik. Þá tekur löggan við og stýrir flutningunum.“

En þarf ekki sérstaka þjálfun til að keyra hátt í 100 metra bíla?

„Jú, það er alveg þaulvanur mannskapur sem er að flytja þetta og keyra og svo er lögreglan mjög vön að stýra svona yfirstærðarflutningum.“

Sem fyrr segir hefst fyrsti flutningur verkefnisins frá Þorlákshöfn í Vaðölduver í byrjun maí en svo er ráðgert að Landsvirkjun muni standa að að meðaltali sex flutningum á viku í sjö til níu vikur.

Hver spaði er 68 metrar. mbl.is/Eyþór

Komnar í rekstur síðla hausts

Spurður hvenær megi gera ráð fyrir að þær vindmyllur sem eru nú komnar til landsins verði komnar í gagnið segir Sigurgeir að ráðgert sé að fyrsta vindmyllan verði reist um miðjan maí.

„Svo förum við að reisa þær eina af annarri. Samhliða þessu erum við líka á fullu að reisa safnstöð af því að við tökum í raun og veru alla strengina frá vindmyllum og tengjum þær inn í eina rafstöð. Hún ætti að verða tilbúin til spennusetningar í lok júlí þannig að við sjáum fyrir okkur að í lok júlí, byrjun ágúst, geti fyrstu vindmyllurnar í tilraunarekstri farið að framleiða rafmagn inn á net.

Svo verða þessar 14 allar komnar í fullan rekstur síðla hausts.“

Þyngsti flutningur Íslandssögunnar

Það eru ekki bara vindmyllurnar sjálfar sem þarf að flytja til að hægt sé að koma virkjuninni af stað.

„Það er líka einn mjög krítískur flutningur þar að auki. Það er þessi spennir. Það verður þyngsti flutningur sem hefur farið um vegakerfi Íslands. Tækið sjálft er 190 tonn og öll flutningslestin verður 270 tonn,“ segir Sigurgeir.

„Þess vegna þarf að undirbúa þetta vel og við erum bara búin að vera í mjög góðu samstarfi við Vegagerðina og lögregluna, sem og öðrum flutningsaðilum.“

Langur bíll í viðbragðsstöðu. mbl.is/Eyþór

Setur hlutina í samhengi

Að lokum segir Sigurgeir, spurður hvernig tilfinning það sé að sjá fyrstu vindmyllurnar loks komnar til landsins eftir að hafa stýrt undirbúningi virkjunarinnar í nokkur ár:

„Það er stórkostlegt. Þetta setur hlutina í samhengi.“

Hann bætir þó við að það sem setti hlutina í enn meira samhengi en að sjá vindmylluspaðana sjálfa hafi verið að sjá hina gífurlega löngu bíla sem þeir verða fluttir á.

Heimild: Mbl.is