F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í verkið:
Skóli, menningarhús, bókasafn og sundlaug 2. áfangi Nýbygging – EES útboð nr. 13805.
Verkið felst í jarðvinnu, uppsteypu og fullnaðarfrágangi utanhúss á nýrri 5.194 m2 grunnskólabyggingu. Grunnskólinn er 2. áfangi í byggingakeðju sem liggur meðfram Úlfarsbraut. Grunnskólinn er austan við núverandi leikskólabyggingu sem er 1. áfangi byggingakeðjunnar.
Helstu verkþættir og magntölur eru:
- Gröftur: 6.000 m3
- Fyllingar: 6.000 m3
- Lagnir í jörð: 1.500 m
- Loftræsistokkar í jörð: 90 m
- Mótafletir: 20.700 m2
- Steypa: 4.000 m2
- Bendistál: 520 tonn
- Holplötur: 860 m2
- Stálvirki: 4 tonn
- Rör í steypu plastpípur: 2.700 m
- Uppgröftur fyrir sökklum, flutningur innan lóðar: 2.750 m3
- Uppgröftur fyrir sökklum, brottakstur: 750 m3
- Fylling innan sökkla, aðkeyrt efni: 850 m3
- Fylling innan sökkla, endurnýtt efni: 2.000 m3
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar frá og með 17. október 2016 á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – Vinsamlega nota Explorer – virkar ekki í Chrome.
Finna má leiðbeiningu um nýskráningu fyrirtækja hér. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella „New supplier registration“ og fylgja leiðbeiningum á skjá.
Vakin er athygi á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef innkaupadeildar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef innkaupadeildar Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 24. nóvember 2016.