Úr fundargerð Byggðarráðs Rangárþings eystra þann 16.04.2026
Gatnagerð – Bílastæði við Skógafoss, áfangi 2
Sjö tilboð bárust í framkvæmdina Skógar 2026 rútubílastæði.
Yfirferð verðtilboða og yfirferð á hæfisskilyrðum útboðs- og samningsskilmála verður unnin af Verkfræðistofunni Eflu, f.h. Rangárþins eystra.
Að yfirferðinni lokinni og ef ekki verða gerðar athugasemdir við hæfisskilyrði útboðs- og samningsskilmála er sveitastjóra er falið að ganga til samninga við lægstbjóðanda, VBF Mjölnir ehf. Samþykkt með þremur samhljóða atkvæðum.












