Isavia innanlandsflugvellir ehf. hyggst kanna áhuga, getu og sjónarmið verktaka á markaðnum vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Egilsstaðaflugvelli.
Tilgangur markaðskönnunarinnar er að afla upplýsinga um áhuga, þekkingu og getu markaðarins, og á sama tíma að fá sjónarmið markaðarins inn áður en ráðist er í gerð útboðsgagna, til að tryggja að þau gögn séu í samræmi við sjónarmið markaðarins.
Breytingin felst í að ný akbraut er afmörkuð austanvert við norðurenda núverandi flugbrautar. Um er að ræða allt að 1000 m langa og allt að 34m breiða akbraut meðfram núverandi flugbraut vallarins og tengingu við hana. Öryggissvæði flugbrautar er óbreytt.
Flugvallargirðingu er hliðrað til austurs á um 700 m löngum kafla þannig að flugvallarsvæði innan girðingar stækkar um 4,5 hektara. Við enda flugbrautar er girðingunni breytt til samræmis við núverandi legu hennar. Staðsetning girðingar er leiðbeinandi en hún skal að lágmarki vera í 5 m fjarlægð frá bökkum Eyvindarár.
Gert er ráð fyrir að verkið verðið boðið út eftir að Alþingi hefur samþykkt verkefnið á Samgönguáætlun og samþykki Samgöngustofu á framkvæmdinni þá verði það boðið út í framhaldinu.
| Tegund: | Markaðskönnun (RFI) |
| Auglýst: | 17.04.2026 kl. 14:00 |
| Skilafrestur | 11.05.2026 kl. 12:00 |
Svörum við spurningum og öðrum gögnum skal skila í gegnum útboðsvef Isavia eigi síðar en miðvikudaginn 11. maí 2026 kl. 12:00.












