Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Endurbætur á Sultartangastöð

Endurbætur á Sultartangastöð

20
0
Lokum er komið fyrir í aðrennslisgöngum virkjunarinnar. Áður höfðu kafarar kannað ástandið. Ljósmyndir/Landsvirkjun

Framkvæmdir við víkkun og dýpkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar hófust nýlega á vegum Landsvirkjunar.

Meðan á framkvæmdum stendur verður stöðin tekin úr rekstri en gert er ráð fyrir að verkið taki um hálft ár og stöðin komist því aftur í rekstur í byrjun október.

Landsvirkjun hefur undanfarin misseri unnið að verkefnum sem auka afkastagetu virkjana fyrirtækisins.

Unnið hefur verið að undirbúningi framkvæmdanna við Sultartangastöð undanfarna mánuði. Þrjú tilboð bárust í verkið og voru þau opnuð í byrjun mars.

Fyrirtækið Leonhard Nilsen & Sønner AS bauðst til að vinna verkið fyrir krónur 1.664.742.235. Suðurverk hf. og Fossvélar ehf. buðu kr. 2.065.062.412 og Ístak hf. kr. 2.132.888.796.

Heimild: Mbl.is