Mestar hækkanir hafa komið fram hjá múrurum, smiðum og rafvirkjum.
Það hefur orðið verulega dýrara fyrir dönsk heimili að fá iðnaðarmenn til verka. Á síðustu fimm árum hefur kostnaður við slíka þjónustu hækkað um 38 prósent, sem er meira en tvöföld verðbólga á sama tíma.
Nýjar tölur frá Hagstofu Danmerkur sýna að verð á þjónustu iðnaðarmanna hefur rokið upp langt umfram almennt verðlag. Á meðan neysluverð hækkaði um tæp 16 prósent á tímabilinu hækkaði kostnaður við iðnaðarmenn um 38 prósent.
Þetta þýðir að dönsk heimili þurfa nú að greiða mun meira en áður fyrir verk á borð við múrverk, raflagnir, smíðar og þakframkvæmdir. Á síðasta ári einu saman hækkaði kostnaðurinn enn frekar, eða um 4,3 prósent, á meðan almenn verðbólga mældist 1,9 prósent.
Morten Bruun Pedersen, aðalhagfræðingur dönsku neytendasamtakanna Tænk, segir mikla eftirspurn hafa styrkt samningsstöðu iðnaðarmanna. Að hans mati skýrast verðhækkanirnar ekki aðeins af dýrari byggingarefnum heldur einnig af skorti á faglærðu starfsfólki, sem gefi fyrirtækjum svigrúm til að hækka verð.
Mestar hækkanir hafa komið fram hjá múrurum, smiðum og rafvirkjum. Verð hjá múrurum hækkaði að meðaltali um 5,5 prósent á síðasta ári, á meðan smiðir og rafvirkjar hækkuðu verð um 4,3 og 4,4 prósent. Sé litið yfir fimm ára tímabil hafa smiðir þó hækkað meira en múrarar, eða um 42 prósent.
Þakframkvæmdir hafa hækkað mest allra. Nú kostar 56 prósentum meira að láta setja nýtt þak á hús en árið 2020.
Skýringarnar virðast einkum tvær: mikil eftirspurn og skortur á vinnuafli.
Um fjórðungur byggingarfyrirtækja í Danmörku segist búa við manneklu og greining frá Efnahagsráði dönsku verkalýðshreyfingarinnar bendir til þess að skorturinn eigi ekki eftir að minnka á næstu árum. Gert er ráð fyrir að allt að 99 þúsund faglærða starfsmenn muni vanta árið 2030 haldist þróunin óbreytt.
Louis Konstantyner, ráðgjafi hjá DI Byggeri, segir þróunina endurspegla einfalt lögmál framboðs og eftirspurnar. Eftirspurn eftir endurbótum og viðhaldi hafi aukist hratt á meðan afkastageta greinarinnar hafi ekki fylgt með, þótt atvinnustig í greininni hafi aldrei verið hærra.
Hann bendir þó á að samkeppni sé enn til staðar á markaðnum og að heimili geti enn leitað eftir mörgum tilboðum og borið saman verð.
Aukinn þróttur á fasteignamarkaði og bættur kaupmáttur heimila hafa einnig ýtt undir eftirspurn. Fleiri fasteignaviðskipti hafa kallað á auknar framkvæmdir og viðgerðir, sem aftur hafa þrýst enn frekar á verð.
Neytendasamtökin hvetja heimili til að fara varlega, kynna sér markaðinn vel og semja skýrt um framkvæmdakostnað áður en ráðist er í verk. Þá sé mikilvægt að grípa strax inn í ef kostnaður fer að hlaupa fram úr áætlun í stað þess að bíða eftir lokareikningi.
Heimild: Vb.is












