Fyrsta skóflustungan að verksmiðju Íslenska Kalkþörungafélagsins var tekin í Súðavík í gær. Þar stendur til að reisa 5500 fermetra byggingu og talið er að um 25-30 störf skapist.
Í gær var fyrsta skóflustungan að verksmiðju Íslenska Kalþörungafélagsins í Súðavík tekin. Stefnt er að því að húsið verði risið og hægt að hefja vinnslu um mitt næsta ár.
„Hér munum við framleiða kalsíum úr kalkþörungum sem fer annars vegar í fóðurbæti og hins vegar í matvælaframleiðslu,“ segir Halldór Halldórsson forstjóri Ískalks.
Fyrirtækið gerir ráð fyrir að þegar starfsemi verði komin á fullt þurfi tuttugu og fimm til þrjátíu starfsmenn.
„Við eigum eftir að láta á það reyna hvort það sé nóg fólk í Súðavík. Við vonumst auðvitað til þess að það fólk verði áhugasamt því við munum fara að auglýsa eftir fólki á næsta ári.“
Halldór telur að nýi vinnustaðurinn muni hafa góð áhrif í Súðavík og fyrirtækið vilji hafa sem flest starfsfólk sitt þar.
Heimild: Ruv.is












