
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, SI, segir boðaða lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað geta jafngilt að meðaltali 2,5-3 milljóna króna skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar.
Sigurður segir að málið muni draga verulega úr byggingu íbúða.
Spurður hvað hann haldi að stjórnvöldum gangi til segir Sigurður að málið virðist allt vera á misskilningi byggt.
„Það er alrangt að þessi endurgreiðsla sé tilfallandi ívilnun eða úrræði sem hægt er að draga úr án víðtækra áhrifa.“
Skýr samhljómur
Sigurður vísar í nýja spurningakönnun sem SI létu gera meðal verktaka sem byggja íbúðir. Þar kemur skýrt fram að umræddar breytingar komi til með að hækka byggingarkostnað íbúða, draga úr uppbyggingu, auka atvinnuleysi í greininni, ýta undir svarta atvinnustarfsemi og draga úr getu almennings til að viðhalda fasteignum sínum. „Það var skýr samhljómur í svörum verktaka í könnuninni.“
Sigurður segir söguna líka sýna að þegar samdráttur er í byggingariðnaði hafi störfum fækkað. „Endurgreiðslurnar eiga að styðja við iðnaðinn en ekki auka samdráttinn. Sölutími fasteigna lengist nú jafnt og þétt samkvæmt tölum Seðlabanka Íslands.“
Heimild: Mbl.is











