Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 28.04.2026 Dalvík – Norður­garð­ur, raforku­virki 2026

28.04.2026 Dalvík – Norður­garð­ur, raforku­virki 2026

21
0

Hafnarstjórn Dalvíkur óskar eftir tilboðum í verkið „Dalvík – Norðurgarður, raforkuvirki 2026“.

Helstu verkþættir eru:

  • Ídráttur strengja
  • Uppsetning og tenging rafbúnaðar í tenglaskápum
  • Uppsetning og tenging aðaltöflu í rafbúnaðarhúsi
  • Uppsetning og tenging masturs- og stigaljósa
  • Ídráttur strengja og tenging rafbúnaðar
  • Rafbúnaður í töflur/tenglaskápa
  • Tenging og uppsetning lampa í ljósamöstur
  • Tenging og uppsetning stigaljósa
  • Lagningu raflagna í masturshús

Verkinu skal lokið eigi síðar en júní 2026.

Útboðsgögn eru afhent rafrænt í TendSign útboðskerfinu. Afhending gagnanna er án endurgjalds, frá og með þriðjudeginum 14. apríl 2026.

Tilboði skal skila rafrænt í TendSign útboðskerfinu fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 28. apríl 2026.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu, heildartilboðsupphæð og hvort tilboð sé sett fram sem frávikstilboð.