RARIK ohf., kt. 520269-2669, óskar eftir tilboðum í útboðsverkið: Strenglögn – Vatnshamrar að Ferjubakka – Vesturlandi.
Um tvo verkstaði er að ræða þ.e. strenglögn frá Vatnshömrum að Hvítá og frá Ferjubakka að Hvítá. Strenglögnin er hrein stofnlögn og því engar jarðspennistöðvar á leiðinni.
Háspennustrengir eru 3 stk 1x300q 36 kV um 6.3 km og 3 stk 1x240q 36 kV um 6.3 km. Þannig að plægja þarf í heildina 6 stk strengi samhliða á um 6.3 km kafla. Óskað er eftir því að lagt verði ljósleiðararör samhliða verkinu fyrir Rarik.
Gengið er út frá því að verkið hefjist 22. júní og sé lokið 17. ágúst 2026.
| Útboðsgögn afhent: | 14.04.2026 kl. 09:39 |
| Skilafrestur | 18.05.2026 kl. 14:00 |
Tilboðum skal skilað inn með rafrænum hætti á útboðsvef RARIK.
Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.
Útboðsgögn og allar frekari upplýsingar má finna á útboðsvef RARIK












