Þorsteinn R. Hermannsson hefur verið ráðinn sem framkvæmdastjóra Betri samgangna og var gengið frá ráðningu hans fyrir helgi.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Betri samgöngum en alls bárust níu umsóknir um starfið.
Starf framkvæmdastjóra var auglýst laust til umsóknar í byrjun mars þegar Davíð Þorláksson lét af störfum til að taka við sem framkvæmdastjóri hjá Almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins, nýju félagi sem tekur yfir rekstur og þjónustustýringu Strætó og mun síðar sjá um rekstur Borgarlínu.
„Eftir vandað ferli undir stjórn VinnVinn var niðurstaða stjórnar að ráða Þorstein í starfið en hann kom best út í samanburði við aðra umsækjendur. Við bjóðum Þorstein velkominn til starfa hjá Betri samgöngum í þessu nýja hlutverki og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs við hann og annað starfsfólk fyrirtækisins,“ er haft eftir Eyjólfi Árna Rafnssyni, stjórnarformanni Betri samgangna í tilkynningunni.
Þorsteinn er með meistarapróf í byggingarverkfræði með sérhæfingu í samgönguverkfræði frá University of Washington og lauk BSc-námi í umhverfis- og byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað hjá Betri samgöngum frá árinu 2021 en var þar áður samgöngustjóri Reykjavíkurborgar frá 2016 til 2021.
Heimild: Mbl.is












