Reykjansbær auglýsir til sölu byggingarrétt á lóð við Stapabraut 15. Um er að ræða 13.950 m² lóð sem samkvæmt aðalskipulagi er skilgreind fyrir verslun og þjónustu, þar sem gert er ráð fyrir fjölbreyttum rekstri sem ekki er í samkeppni við nær þjónustu.
Helstu upplýsingar:
- Stærð lóðar: 13.950 m²
- Byggingarmagn til viðmiðunar: 6.277 m²
- Notkun: Verslun og þjónusta
- Lágmarksverð: 6.000 kr/m²
- Lágmarksboð í byggingarrétt miðað við framangreint: 37.665.000 kr.
Athygli er vakin á að hér er um að ræða sölu á byggingarrétti en ekki lóðinni sjálfri. Gerður verður lóðarleigusamningur sem kveður á um réttindi og skyldur lóðarhafa.
Skilmálar og framkvæmd
- Deiliskipulag verður unnið af lóðarhafa
- Umsókn skal ná til alls byggingarmagns
- Opinber gjöld (t.d. gatnagerðagjöld og byggingarleyfi) eru ekki innifalin í útboði
Við mat á umsóknum verður 70% byggt á tilboði í byggingarrétt og 15% byggt á gæðum tillögu og 15% byggt á samfélagslegum ávinningi.
Hæfi umsækjenda
- Eingöngu lögaðilar geta sótt um lóðina
- Heimilt er að fleiri en einn lögaðili standi saman að umsókn
Sótt er um hér: uthlutun@reykjanesbaer.is
Umsóknafrestur er til: 27. apríl
Reykjanesbær áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum sem berast.
Heimild: Reykjanesbær












