Home Fréttir Í fréttum Hagnaður Byko síðast minni árið 2014

Hagnaður Byko síðast minni árið 2014

133
0
Sigurður Pálsson, forstjóri Byko. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Velta bygginga­vöru­verslunarinnar dróst saman um 3,3% milli ára.

Byggingavöruverslunin Byko, sem er í eigu Norvik-samstæðunnar, hagnaðist um 485 milljónir króna í fyrra, samanborið við 777 milljóna króna árið 2024. Stjórn félagsins lagði ekki til tillögu um arðgreiðslu til hluthafa á aðalfundi félagsins 2026, að því er segir í nýbirtum ársreikningi.

Afkoma félagsins eftir skatta var síðast lægri árið 2014 og EBITDA-hagnaður þess var síðast minni árið 2016.

Velta byggingavöruverslunarinnar dróst saman um 3,3% milli ára og nam 28,9 milljörðum króna. Framlegð í krónum talið jókst um 2,6% milli ára og nam 9,7 milljörðum króna.

Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) dróst saman um 21,4% milli ára og nam 981 milljón. EBIT-hagnaður félagsins nam 174 milljónum.

Þess má geta að gengismunur var neikvæður um 33 milljónir í fyrra en jákvæður um 64 milljónir árið 2024, sem litaði mun á afkomu milli ára.

Skjáskot af Vb.is

Hófleg bjartsýni þrátt fyrir óvissu

Í skýrslu stjórnar segir að helstu óvissuþættir í rekstri séu þrálát verðbólga og hátt vaxtastig sem hafi neikvæð áhrif á umsvif á byggingavörumarkaði.

Jafnframt ríki mikil óvissa í heimsmálum, m.a. vegna ófriðar í Miðausturlöndum en sú staða geti haft neikvæð áhrif á aðfangakeðjur. Hækkun olíuverðs geti leitt til aukins flutningskostnaðar og þar með haft víðtæk áhrif á verðlag, sem hækki heildarkostnað við framkvæmdir.

„Þrátt fyrir framangreinda óvissu er það mat stjórnar að bjartsýni sé réttmæt og að íbúðauppbygging ásamt fasteignamarkaði taki að leita í rétta átt þegar líða fer á árið. Óhætt að er halda því fram að uppbygging í fjárfestingum og útboðum af hálfu hins opinbera sé kærkomið mótvægi við þann samdrátt sem hefur einkennt greinina undanfarin ár, þar sem má sjá töluverðan vöxt á milli ára.

Búast má við áframhaldandi stöðugleika samhliða hóflegum vexti þegar horft er inn í einstaklingsmarkað. Heimilin standa sterk, einkaneysla er áfram í vexti ásamt uppsafnaðri viðhaldsþörf.“

Eignir Byko námu 10,2 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 4,4 milljarðar króna.

Heimild: Vb.is