„Það er gömul saga en ekki ný að safnaðarfólk Fríkirkjunnar í Hafnarfirði tekur af krafti þátt í starfi og uppbyggingu kirkjunnar og safnaðarheimilisins. Kirkjan er vel sótt og hefur verið vel staðið að viðhaldi hennar hvert ár,“ segir séra Einar Eyjólfsson fríkirkjuprestur í Hafnarfirði um söfnun sem ýtt hefur verið af stað vegna endurbyggingar safnaðarheimilisins.
Söfnunin fór af stað í síðustu viku og hafa verið sendar út beiðnir til safnaðarfólks um stuðning. Kirkjan hefur í nokkur ár sent beiðnir til sóknarbarna um stuðning við safnaðarstarfið og segir Einar að núna snúist söfnunin um að komast í gegnum framkvæmdirnar við safnaðarheimilið skuldlaust.
Heimild: Mbl.is












