Kynningarfundur var haldinn í vikunni þann 9. apríl, fyrir væntanlega bjóðendur í jarðvinnuútboði vegna stækkunar Sjúkrahússins á Akureyri. Starfsmenn NLSH fóru yfir útboðsferlið og framkvæmdina ásamt vettvangskönnun á verkstað. Góð mæting var á fundinn og góðar umræður um útboðið.

Verkið er fyrsti áfangi verkframkvæmda við Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) vegna stækkunar á sjúkrahúsinu til suðurs þar sem nú eru bílastæði. Við þessa stækkun þarf að gera ný bílastæði og endurnýja veitukerfi á lóð sjúkrahússins á milli Þórunnarstrætis og Búðartraðar.
Hannes Örn Jónsson á framkvæmdasviði NLSH og Aðalsteinn Jónsson NLSH sáu um fundinn í samráði við starfsmenn SAk.
Stærstu verkliðir eru
– Gröftur á jarðefnum 50.000 m3
– Malbikun 7.400 m2
Tilboðum skal skila í gegnum útboðskerfið tendsign.is fyrir kl. 13:00, 29. apríl.

Heimild: NLSH.is












