Home Fréttir Í fréttum Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki

Hillir undir menningarhús á Sauðárkróki

29
0
Svona kemur menningarhús á Sauðárkróki til með að líta út, miðað við tillögu Arkís arkitekta. Tölvumynd/Arkís arkitektar

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur uppi áform um að reisa nýtt menningarhús á Sauðárkróki en fyrir liggur samkomulag um framkvæmdina á milli sveitarfélagsins og ríkisins. Ríkið hefur boðist til að greiða um 60% og afgangurinn lendir á sveitarfélaginu.

Tillaga að útliti hússins hefur verið kynnt, sem unnin var af Arkís arkitektum. Á húsið að koma á milli Safnahússins og Sundlaugar Sauðárkróks, á Flæðunum svonefndu. Tillaga kom frá fulltrúa minnihluta í sveitarstjórn um íbúakosningu um framkvæmdina, en meirihlutinn hafnaði þeirri tillögu.

Allt frá því að hugmyndir kviknuðu um uppbyggingu menningarhúsa í Skagafirði hefur ýmislegt áunnist en annað dregist vegna ófyrirséðra atvika. Menningarhúsið Miðgarður í Varmahlíð hefur sannað gildi sitt og nú sér fyrir endann á langri sögu um fullnustu samnings milli sveitarfélags og ríkis um byggingu menningarhúss á Sauðárkróki.

Heimild: Mbl.is