Home Fréttir Í fréttum Samið um lagningu jarðstrengja til Súðavíkur

Samið um lagningu jarðstrengja til Súðavíkur

64
0
Á myndinni sem tekin er við aðveitustöð á Ísafirði eru, frá Orkubúi Vestfjarða, Benedikt Ólafsson rafmagnstæknifræðingur, Halldór V Magnússon framkvæmdastjóri veitusviðs og Elías Jónatansson orkubússtjóri. Frá Þjótanda eru þeir Ólafur Einarsson framkvæmdastjóri og Valdimar Guðmundsson.

Í gær, fimmtudaginn 9.apríl var undirritaður verksamningur, milli Orkubús Vestfjarða og verktakafyrirtækisins Þjótanda, um lagningu jarðstrengja og ljósleiðara frá aðveitustöð á Skeiði á Ísafirði að nýrri aðveitustöð á Langeyri innan við Súðavík.

Um er að ræða annars vegar 33 kV jarðstreng sem verður burðarstrengur í orkuflutningi, m.a. fyrir nýja Kalkþörungaverksmiðju í Súðavík, ásamt 11 kV jarðstreng sem líta má á sem varaflutningsleið fyrir almenna notkun.  Almennir notendur í Súðavík verða þannig hringtengdir við aðveitustöð á Ísafirði.  Auk jarðstrengjanna verða lagðir ljósleiðarar  í sama skurð.

Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 1. desember í ár, en yfirborðsfrágangur fer fram sumarið 2027.

Heildar fjárhæð samningsins er um 700 milljónir króna.  Verkfræðistofan Efla á Ísafirði annast eftirlit með verkinu.

Tenging til Súðavíkur með tveimur jarðstrengjum mun gjörbylta orkuöryggi í Álftafirði ásamt því að tryggja nýrri kalkþörungaverksmiðju nægt afl til sinnar starfsemi.

Verkáætlun miðar að því að hægt verði að spennusetja 11 kV strenginn strax á þessu ári sem þýðir að notendur í Súðavík verða ekki lengur háðir afhendingu raforku um Súðavíkurlínu, loftlínu sem liggur frá Engidal í Skutulsfirði yfir Rauðkoll í 900 m hæð til Súðavíkur, en línan hefur verið í rekstri í 70 ár.  Línan verður aflögð í kjölfar spennusetningar jarðstrengjanna. Reikna má með að verktaki hefji undirbúning verksins fljótlega með aðstöðusköpun og flutningi tækja á staðinn.

Heimild: BB.is