Tillögur í samkeppnisútboði Þjóðarhallar ehf. um nýja þjóðarhöll, fyrir innanhússíþróttir og fleiri viðburði, verða á næstunni kynntar fulltrúum ríkisins og Reykjavíkurborgar. Thomas Möller stjórnarformaður Þjóðarhallar greindi blaðinu frá þessu þegar það hafði samband við hann og grennslaðist fyrir um gang mála.
Um samkeppnisútboð er að ræða sem frábrugðið er hefðbundnu útboði þegar húsbyggingar eru boðnar út af opinberum aðilum. Tvö teymi tóku þátt í samkeppnisútboðinu og sjá þá um hönnun og verklegar framkvæmdir.
Annars vegar ÍAV ásamt ASK arkitektum, COWI, LPO arkitektum, Íslofti, EOH og Landhönnun og hins vegar Ístak ásamt Eflu ehf., Nordic Office of Architecture og Populus.
Heimild: Mbl.is












