Mosfellsbær óskar eftir áhugasömum aðilum til að taka þátt í útboði vegna 2 áfanga lóðarframkvæmda við Lágafellsskóla í Mosfellsbæ.
Verkefnið felst í að rífa upp og endurnýja yfirborðsefni, setja nýtt yfirborðsefni á boltavelli sem og búa til upphækkaðan tartan orm.
Helstu magntölur eru eftirfarandi:
- Upptaka á yfirborðsefnum 505 m²
- Hellur 198 m²
- Malbik 40 m²
- Gúmmíhellur 178 m²
- Gervigras 97 m²
- Plastflísar á boltavelli 343 m²
- Tartan efni 140 m²
- Uppsettning á leiktækjum 1 stk rólur 24 stk hjólabogar
Óska skal eftir útboðsgögnum í tölvupósti í gegnum mos@mos.is frá og með kl. 10:00 þann 8. apríl 2026
Tilboðum skal skila á mos@mos.is eigi síðar en kl. 10:00 föstudaginn 24. apríl 2026.
Ekki verður haldinn opnunarfundur en niðurstöður verða sendar bjóðendum og birtar á vef Mosfellsbæjar að opnun lokinni.












