Home Fréttir Í fréttum Undirritun samnings um fullnaðarfrágang á ytra byrði rannsóknahús Nýs Landspítala

Undirritun samnings um fullnaðarfrágang á ytra byrði rannsóknahús Nýs Landspítala

116
0
Samninginn undirrituðu Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra og Páll Daníel Sigurðsson framkvæmdastjóri Eyktar. Vottar fyrir hönd NLSH voru Hannes Örn Jónsson, verkefnastjóri á framkvæmdasviði NLSH og Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs NLSH.

Þann 31. mars var undirritaður samningur á milli NLSH ohf. og Eyktar ehf. um fullnaðarfrágang á ytra byrði rannsóknahússins, það er múrverki, þakfrágangi á um 3.300m2, ásamt járn- og blikksmíði auk lagna og loftræsingu.

Fulltrúar verkkaupa og verktaka ásamt heilbrigðisráðherra.

Heimild: NLSH.is